Draugaborgir sækir innblástur sinn í tómar og mannlausar
risaborgir Kína – fylgir eftir mörgum sögum, þar á meðal einni þar sem ungur maður að nafni Xiang er rekinn úr starfi sínu sem þýðandi á kínversku ræðismannsskrifstofunni í Sydney eftir að upp kemst að hann talar ekki stakt orð í kínversku og hefur alfarið reitt sig á Google Translate í starfi sínu.
Hvernig tengist flutningur hans í eina slíka draugaborg hliðstæðum hrakningum þar sem forn keisari býr til þúsund tvífara af sjálfum sér? Eða þar sem lostafullt fjall öðlast meðvitund? Þar sem skákvélmenni býr yfir banvænu leyndarmáli? Eða sögu þar sem öllum bókum í þekktu keisaradæmi er eytt – og þær síðan endurskapaðar,
blaðsíðu fyrir blaðsíðu og bók fyrir bók,
allt í nafni ástarinnar og listarinnar?
Draugaborgir er hugmyndarík táknsaga sem mun höfða til
lesenda Haruki Murakami og Italo Calvino.