{"product_id":"vestanvindurinn","title":"Vestanvindurinn","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHöfundur Norðanvindsins færir lesendum nú myrka og \u003c\/span\u003eseiðandi sögu um forboðnar ástir, innblásna af grísku goðsögunni um Heró og Leander og skoska sagnaljóðinu Tam Lin eftir Robert Burns.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNunnuefnið Bríet hefur tileinkað Þyrniárklaustri líf sitt. Hún vinnur þar sem járnsmiður og á hverju kvöldi les hún Textann til þess að undirbúa sig undir nunnuvígsluna. Í tuttugu og eitt ár hefur hún verið á þessari jörðu en aldrei snert karlmann. Eitthvað sem á líka aldrei eftir að gerast.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar Bríet kemur að dularfullum karlmanni í skóginum sem er alvarlega slasaður, getur hún ekki annað en komið honum til hjálpar. Kynni þeirra leiða hana síðan í ríki Undirheims, þar sem daunn rotnunar liggur yfir öllu á meðan huldufólkið dansar og pískrar. Þar kemst hún að því að maðurinn sem hún aðstoðaði er enginn annar en guðinn Sefíros, eða Vestanvindurinn, sjálfur vorboðinn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Undirheimi eru flestir viðsjárverðir og ekki síst Sefíros. Hann er hættulega sjarmerandi og þar að auki hefur enginn maður haft svona áhrif á Bríet. Ferð hennar um óhugnanlega árbakka og hella Undirheims er afar hættuleg. Því þarna rekast á trú hennar og hjarta og þarna leggur hún ekki einungis framtíð sína undir ... heldur lífið sjálft.\u003c\/p\u003e","brand":"My Store","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53268981055851,"sku":null,"price":5499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0941\/7578\/9419\/files\/Vestanvindurinn_forsida.jpg?v=1779397641","url":"https:\/\/kver.is\/products\/vestanvindurinn","provider":"Netverslun Kvers","version":"1.0","type":"link"}