Dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi. Byggð á mótífum úr Fríðu og dýrinu og goðsögninni um Hades og Persefónu.
Músa frá Jaðarskógi veit of vel hvað það er að þjást.
Þegar foreldrar hennar létust var hún bara unglingur og hennar hlutverk varð að annast tvíburasystur sína og sjá til þess að þær lifðu af harðan og eilífan veturinn. Ef eitthvað er marka goðsögnina er hins vegar stutt í að þær systur eigi í engin skjól að venda.
Í þrjú hundruð ár hefur landið umhverfis Jaðarskóg verið í kuldaklóm og sífellt dregur úr mætti Skuggans - þessa töfrum vædda tálma sem verndar bæjarbúa frá Dauðalöndum sem liggja handan hans. Það eina sem styrkir Skuggann er blóð úr mennskri eiginkonu Norðanvindsins, þeim hættulega og ódauðlega guði sem sagt er að sé með jafn freðið hjarta og hitastigið sem einkennir konungsríki hans. Og nú er sá tími kominn að hann velji sér nýja brúður.
Þegar Norðanvindurinn lítur systur Músu augum í fyrsta sinn veit Músa eitt: Hún mun gera allt til að bjarga lífi systur sinnar jafnvel þótt hún þurfi að fórna lífi sínu en Músa er samt þannig gerð að hún gefst ekki svo auðveldlega upp.