Skip to product information
Myndrík rímsaga um hana Dísu sem er minnsti jakuxinn í hjörðinni og dreymir um að verða stór eins og allir hinir. Dísa á þó eftir að komast að því að þótt hún sé smá er hún fullkomin nákvæmlega eins og hún er, því sumt er nefnilega bara á lítilla jaka færi! Dásamleg rímsaga sem sýnir að öll höfum við eitthvað fram að færa.
32 bls.
Solveig Sif Hreiðarsdóttir íslenskaði